Stjörnuskoðun

Gott er að undirbúa sig vel áður en haldð er út í stjörnuskoðun. Kynntu þér hvað hægt er að sjá á himninum í kvöld. Er gott veður? Sjást norðurljós? Mundu að klæða þig mjög vel!

Hvað sést á himninum í kvöld?

Það er alltaf eitthvað áhugavert á sjá á himninum á hverju kvöldi.

Í hverjum mánuði útbúum við stjörnukort fyrir Ísland sem er dreift ókeypis hér á Stjörnufræðivefnum. Með því er auðveldara að átta sig á helstu stjörnumerkjum og mynstrum á himninum.

Í vefþættinum Sjónaukanum er einnig farið yfir það helst sem sést á himni í hverjum mánuði.

Viðrar vel til stjörnuskoðunar í kvöld?

Stjörnuáhugafólk verður að sjálfsögðu að fylgjast vel með veðurspám. Hér að neðan eru kort frá Veðurstofu Íslands sem sýna staðaspár, vindaspár, hitaspár og úrkomuspár - nokkuð sem við nýtum okkur alltaf þegar við höldum út í stjörnuskoðun.

Skoðaðu líka norðurljósa og skýjahuluspá fyrir Ísland á vefsíðu Veðurstofunnar.

Sjást norðurljós í kvöld?

Eru líkur á að norðurljós sjáist í kvöld? Á heimasíðu Veðurstofu Íslands má finna norðurljósaspá. Þú getur líka skoðað myndina hér undir. Ef kleinuhringslaga beltið liggur yfir Íslandi og er appelsínugult eða rauðleitt eru góðar líkur á að norðurljós sjáist á himninum um kvöldið eða nóttina.

Ef guli hringurinn er yfir Íslandi eru góðar líkur á að norðurljós sjáist á himninum! Appelsínugulur eða rauður litur táknar að segulvirkni sé mikil sem eykur líkurnar á norðurljósum enn frekar.


 

Vekur áhuga yngsta fólksins á undrun alheimsins!

Þetta vefsvæði byggir á Eplica