Risavaxinn geimárekstur

27. ágúst 2013

  • NGC 1232, vetrarbraut, árekstur vetrarbrauta

Hið tignarlega þyrilform þessarar vetrarbrautar er mjög fallegt, en bleiki hjúpurinn á myndinni gefur henni rólegt og töfrandi yfirbragð. Það sem hér sést er samt fremur ofsafengið. Á myndinni sést risavaxinn árekstur milli stórrar þyrilvetrarbrautar og lítillar dvergvetrarbrautar, sem sést hægra megin á myndinni. Bleika móðan er tröllvaxið gasský, nokkrar milljónir gráða á Celsíus, sem verður til þegar vetrarbrautirnar rekast saman! Skýið er að mestu leyti ósýnilegt með berum augum en er svo heitt að það gefur frá mikla háorkugeislun.

Nærri „höfði“ þessa halastjörnulaga misturs sérðu svæði mjög bjartra stjarna. Þarna gæti áreksturinn hafa valdið stjörnumyndunarhrinu. Öflugar sprengingar frá deyjandi stjörnum og sterkum vindum frá heitum, björtum stjörnum, hjálpa til við að lýsa upp skýið svo það gefur frá sér mikla röntgengeislun.

Erfitt er að mæla hve stórt skýið er, því mjög erfitt er að komast að lögun fjarlægra fyrirbæra í geimnum. Við höfum aðeins flatar, tvívíðar myndir til að vinna með og því miður komumst við ekki á bak við skýin! Er bleika móðan þunn og í laginu eins og pönnukaka? Er hún kannski þykkari, eins og regnský? Við getum ekki verið viss um hve stórt skýið er nema finna út lögunina. Ef skýið er þunnt eins og pönnukaka, þá inniheldur það 40.000 sinnum meira efni en sólin okkar! Ef skýið er meira eins og kúla í laginu, þá gæti efnismagnið verið 3 milljón sinnum meira en sólar!

Fróðleg staðreynd

Þegar árekstrar verða á Jörðinni, til dæmis milli tveggja bifreiða, eru þeir yfirstaðnir á sekúndubroti. Árekstrar milli vetrarbrauta eru löturhægir og standa yfir í milljónir ára. Stjörnufræðingar telja að þessi árekstur muni standa yfir í 50 milljónir ára!

UNAWE, Universe Awareness for Young Children Space Scoop

Tengdar myndir

  • vetrarbrautir, árekstur vetrarbrautaHér sést vetrarbrautin NGC 1232 og bleik móða yfir henni. Bleika móðan er nokkurra milljóna gráðu heitt gas sem varð til við árekstur tveggja vetrarbrauta. Mynd: NASA/CXC/HIXA/G.Garmire, ESO/VLT

 

Vekur áhuga yngsta fólksins á undrun alheimsins!

Þetta vefsvæði byggir á Eplica