Ljós úr myrkrinu

14. janúar 2013

  • Lupus 3, skuggaþoka, geimþoka

Ekki er allt sem sýnist, sérstaklega í himingeimnum. Á auðu svæðunum á himninum eru áhugaverðustu fyrirbærin gjarnan falin. Þessi nýja og fallega ljósmynd sýnir glóandi ský úr geimryki fyrir framan skínandi stjörnur í bakgrunni. Með berum augum virðast þessi þykku ský tóm og dimm en sum þeirra geyma björtustu geimþokur og heitustu ungu stjörnur alheimsins!

Stjörnur eru úr gasi svo það kemur ekki á óvart að þær verði til innan í þykkum gasskýjum. En gasskýin sem geta af sér stjörnur byrgja okkur líka sýn á það sem gerist innan í þeim. Sem betur fer fyrir okkur feykja stjörnurnar rykinu burt þegar þær verða heitari og skærari og birtast okkur þá í öllu sínu veldi.

Þyrping björtu ungu stjarnanna hægra megin á myndinni er gott dæmi um þetta. Skært, blátt ljós þeirra sést vel í stað þess að týnast innan í dökka gas- og rykskýinu í kring. Hægt er að sjá tvær björtustu stjörnurnar á heiðskírri nóttu með handsjónaukum. Þessar stjörnur eru mjög ungar, innan við milljón ára gamlar — þær eru ekki einu sinni enn orðnar smábörn í stjarnfræðilegum skilningi!

Skemmtileg staðreynd: Stjörnumyndunarsvæði eins og þetta geta verið risavaxin! Í Tarantúluþokunni — sem þú getur séð hér — eru til dæmis mörg hundruð massamiklar stjörnur að myndast. Ef þú gætir ferðast á hraða ljóssins tæki það þig 650 ár að ferðast enda á milli í henni!

UNAWE, Universe Awareness for Young Children Space Scoop

Tengdar myndir

  • Lupus 3, geimþoka, skuggaþokaDökka skýið sem hér sést er staður þar sem stjörnur verða til. Mynd: ESO/F. Corneron

 

Vekur áhuga yngsta fólksins á undrun alheimsins!

Þetta vefsvæði byggir á Eplica