Frá litlum grænum körlum til stórra grænna vetrarbrauta!

06. desember 2012

  • vetrarbrautir, virkar vetrarbrautir, grænar baunir

Þú deilir jörðinni með sjö milljörðum manna, fólki á öllum aldri, stærðum og gerðum. Í alheiminum eru að minnsta kosti milljón sinnum fleiri vetrarbrautir en mannfólk! Og þær eru líka af ýmsum stærðum og gerðum.

Nýlega bættist ný tegund vetrarbrauta í hópinn. Þessar vetrarbrautir eru stórar og bjartari en flestar aðrar í geimnum! Og þær eru líka eiturgrænar! Þess vegna hafa stjörnufræðingar kallað þessar vetrarbrautir „grænar baunir“ (sjáðu græna blettinn í miðju myndarinnar).

Þessar nýju vetrarbrautir eru meðal sjaldséðustu fyrirbæra í alheiminum. Við teljum að þær skíni svona skært vegna svarthols í miðju þeirra. Svarthol er lítið fyrirbæri með ógnarsterkt þyngdartog. Allt efni sem hættir sér of nærri, sogast inn í svartholið og sést aldrei aftur. Sennilega lúra slík skrímsli í miðjum allra vetrarbrauta, þar á meðal í Vetrarbrautinni okkar!

Þegar svarthol sýgur til sín nærliggjandi efni myndast skífa í kringum það. Hugsaðu þér hvernig vatn fellur í svelg ofan í niðurfall. Skífa svartholsins verður sífellt heitari sem veldur því að mikið magn af ljósi berst frá henni. Á þann hátt mynda svarthol mjög bjartar miðjur vetrarbrauta. En í tilviki grænu baunanna er það vetrarbrautin í heild sinni sem glóir!

Skemmtileg staðreynd: Í geimnum eru líka til vetrarbrautir sem kallast „gráertur“. Þær eru mjög svipaðar grænu baununum að útlit (sjá hér) en eru miklu smærri og eru lýstar upp af öllum stjörnunum innan í þeim!

Þessi frétt er unnin í góðu samstarfi við UNAWE og Space Scoop.

UNAWE, Universe Awareness for Young Children Space Scoop

Tengdar myndir

  • vetrarbrautHér sést eiturgræn vetrarbraut í 3,7 milljarða ljósára fjarlægð frá jörðinni. Mynd: CFHT/ESO/M. Schirmer

 

Vekur áhuga yngsta fólksins á undrun alheimsins!

Þetta vefsvæði byggir á Eplica