Hringdi einhver í Draugabanana?

12. janúar 2013

  • tifstjarna, sprengistjarna,

Margt fólk víða um heim trúir því að draugar séu til og segjast sumir meira að segja hafa séð drauga. Þú getur nú talið sjálfa(n) þig þeirra á meðal! Þessi draugalega mynd sýnir nefnilega massamikla stjörnu í framhaldslífi sínu. Segja mætti að hún sé „draugastjarna.“

Stór stjarna endar ævi sína þegar eldsneytið hennar er uppurið. Á þeim tímapunkti þjóta ytri lög hennar út í geiminn í gríðarmikilli sprengingu og kjarninn hrynur inn í sjálfan sig. Lögin sem þjóta burt mynda litrík og glæsileg ský (eins og þetta) en það er í kjarnanum sem hlutirnir verða sérstaklega forvitnilegir. Þessi draugalega ljósmynd er einmitt af þéttum kjarna massamikllar stjörnu eftir að hún sprakk.

Á meðan ytri lögin skjótast burt fellur kjarninn saman. Efni sem dugir í sól eins og okkar (og fleiri) þjappast saman í svæði sem er minna en höfuðborgarsvæðið! Þá hefur kjarninn framhaldslíf sitt sem ný tegund stjörnu. Á myndinni hefur kjarninn endurfæðst sem „tifstjarna“. Það er stjarna sem snýst á ógnarhraða — jafnvel hraðar en þyrluspaðar! Þegar stjarnan snýst, gefur hún frá sér efnisstrók. Sérðu hvar hann liggur á ská upp á við á myndinni?

Smelltu hér til að sjá tifstjörnuna snúast!

Skemmtileg staðreynd: Tifstjörnur hafa einstaklega sterkt segulsvið. Ef þú stæðir á yfirborði tifstjörnu værirðu tveimur milljón milljarðs sinnum þyngri en á jörðinni!

UNAWE, Universe Awareness for Young Children Space Scoop

Tengdar myndir

  • tifstjarna, sprengistjarnaHér sést tifstjarnan í sprengistjörnuleifinni í stjörnumerkinu Seglinu. Mynd: NASA/CXC/Univ of Toronto/M.Durant et al

 

Vekur áhuga yngsta fólksins á undrun alheimsins!

Þetta vefsvæði byggir á Eplica