Vetrarbraut í skotlínunni

06. desember 2012

  • NGC 922, vetrarbraut, hringvetrarbraut

Alheimurinn er stór og að mestu tómur. Þrátt fyrir það verða stundum árekstrar í geimnum. Sjáðu til dæmis þessa mynd: Hún lítur út eins og risastórt skotmark. Fyrir um 300 milljónum ára þaut smærri vetrarbraut beint í gegnum mitt skotmarkið!

Þessi vetrarbraut var upphaflega þyrilvetrarbraut. Hún hafði nokkra langa arma úr stjörnum og ryki sem hverfðust um kjarnann, eins og vetrarbrautin á þessari mynd. Við áreksturinn afmyndaðist vetrarbrautin og armarnir nánast eyddust en í staðinn varð til bjagaður vetrarbrautarhringur. Þú sérð að bjarta gaskennda miðja vetrarbrautarinnar hefur færst til hliðar og þyrilarmarnir eru út um allt. Leifar eins armsins sjást standa út úr efsta hluta vetrarbrautarinnar.

Við áreksturinn urðu til gárur eins og þær sem myndast þegar þú kastar steini ofan í vatn. Gárurnar hreyfðu til gas í vetrarbrautinni sem hratt af stað keðjuverkandi stjörnumyndun. Mörg þúsund stjörnur urðu til en þær sjást í bláu svæðunum myndinni hér hægra megin.

Skemmtileg staðreynd: Eftir fjóra milljarða ára mun Vetrarbrautin okkar rekast á nágranna okkar í geimnum, Andrómeduvetrarbrautina. Þá mun sólin líklega kastast yfir í annan hluta vetrarbrautarinnar. Geturðu ímyndað þér að sjá gerólíkan næturhiminn?

Þessi frétt er unnin í góðu samstarfi við UNAWE og Space Scoop.

UNAWE, Universe Awareness for Young Children Space Scoop

Tengdar myndir

  • NGC 922, vetrarbrautHér sést vetrarbrautin NGC 922. Fyrir um 300 milljónum ára fór önnur smærri vetrarbraut beint í gegnum hana. Mynd: ESA/Hubble
  • NGC 922, vetrarbrautHér er búið að setja saman myndir frá Hubble og Chandra sjónaukunum. Chandra sér heitustu staðina í vetrarbrautina og eru þeir bláir að lit. Mynd: ESA/Hubble og CXC

 

Vekur áhuga yngsta fólksins á undrun alheimsins!

Þetta vefsvæði byggir á Eplica