Skærar stjörnur á dimmum himni

06. desember 2012

  • Kjalarþokan, Carina nebula, NGC 3372, Eta Carinae

Ljós hjálpar okkur oftast að sjá hluti en þegar við horfum upp í næturhimininn byrgir ljósið okkur stundum sýn. Götu- og bílljós skemma útsýni okkar á stjörnurnar, reikistjörnur og jafnvel Vetrarbrautina okkar. Á heiðskíru kvöldi ættir þú að geta séð um 2.500 stjörnur með berum augum en ef þú býrð í borg eða bæ sérðu líklega frekar fáar stjörnur á kvöldin!

Þessi glæsilega stjörnuljósmynd sýnir skínandi stjörnuþyrpingu og litríkt gasský sem kallast Kjalarþokan. Kjalarþokan er risavaxið svæði úr gasi, ryki og stjörnum í Vetrarbrautinni okkar. Ef þú byggir á suðurhveli jarðar sæirðu þetta risaský á næturhimninum, jafnvel án stjörnusjónauka, þó vitaskuld væri það ekki svona litríkt. En eins og við á um svo mörg önnur undur alheimsins sést Kjalarþokan vart lengur úr borgum og bæjum vegna ljósmengunar.

Sem betur fer hafa stjörnufræðingar komið sér upp stórum og öflugum sjónaukum til að skyggnast djúpt inn í alheiminn og ná myndum eins og þessari. Myndin var tekin með stórum sjónauka í miðri eyðimörk í Chile, langt frá allri ljósmengun. Á myndinni sjást mörg ótrúlega falleg smáatriði í Kjalarþokunni, svo sem dökkir rykstólpar sem kljúfa glóandi gasský og þyrpingar ungra stjarna.

Skemmtileg staðreynd: Árið 2012 var slökkt á ljósunum í mörg þúsund borgum um allan heim í eina klukkustund til að minna fólk á mikilvægi þess að vernda reikistjörnuna okkar. Meira að segja geimfararnir í Alþjóðlegu geimstöðinni tóku þátt! Ef þú vilt halda næturhimninum dimmum og stjörnunum björtum skaltu kíkja á Dark Skies Awareness og sjá hvernig þú getur hjálpað til.

Þessi frétt er unnin í góðu samstarfi við UNAWE og Space Scoop.

UNAWE, Universe Awareness for Young Children Space Scoop

Tengdar myndir

  • KjalarþokanHér sést stjörnumyndunarsvæðið Kjalarþokan. Mynd: ESO. Þakkir: VPHAS+ Consortium/Cambridge Astronomical Survey Unit

 

Vekur áhuga yngsta fólksins á undrun alheimsins!

Þetta vefsvæði byggir á Eplica