84 milljónir stjarna og fer fjölgandi

24. október 2012

  • vetrarbrautin, VISTA, stjörnur

Stafrænu myndavélarnar sem við notum dags daglega eru eins og leikföng við hliðina á myndavélinni sem tók þessa nýju mynd af miðju okkar vetrarbrautar.

Ef þú ferð út í búð að kaupa nýja myndavél sérðu fljótt að tekið er fram hve marga „megapixla" hún hefur. Sú tala segir til um hve mikil smáatriði sjást á myndinni og hve stórar myndirnar verða. Stafrænar myndavélar hafa oft um og yfir 10 megapixla. Þessi ótrúlega mynd hér að ofan var tekin með sérstakri myndavél sem er föst á sjónauka en myndin er 9.000 megapixlar!

Það er þó ekki eina stóra talan sem tengist myndinni. Á henni geta stjörnufræðingar nefnilega séð 173 milljónir fyrirbæri og búið er að staðfesta að af þeim eru 84 milljónir stjörnur! Það eru tíu sinnum fleiri stjörnur en stjörnufræðingar hafa séð á eldri myndum af miðju okkar vetrarbrautar.

„Nýju gögnin gefa okkur svipmynd af öllum stjörnunum í einu svo við getum talið stjörnurnar í þessum hluta vetrarbrautarinnar" segir stjörnufræðingurinn Dante Minniti. Stjörnufræðingar hafa þegar gert áhugaverða uppgötvun með því að rannsaka þessa mynd: Þeir hafa fundið aragrúa stjarna sem kallast daufir, rauðir dvergar. Það eru góðar fréttir fyrir stjörnufræðinga í leit að reikistjörnum því daufir rauðir dvergar henta sérstaklega vel til þeirrar leitar.

Frekari upplýsingar

Þessi frétt er unnin í góðu samstarfi við UNAWE og Space Scoop.

UNAWE, Universe Awareness for Young Children Space Scoop

Tengdar myndir

  • vetrarbrautin, VISTA, stjörnurÞessi glæsilega mynd af miðsvæðum okkar vetrarbrautar var tekin með VISTA sjónaukanum í Chile. Hún var búin til með því að setja saman þúsundir stakra ljósmynda frá VISTA. VISTA hefur myndavél sem sér í gegnum stóran hluta af því ryki sem byrgir okkur stunum sýn

 

Vekur áhuga yngsta fólksins á undrun alheimsins!

Þetta vefsvæði byggir á Eplica